Forsíða

SÍÐASTI DAGUR SVEINS SKOTTA

Söng og dansleikur
70 mín / 24 persónur en 5-10 manna leikhópur ræður vel við hlutverkin
Leikritið gerist á 17. öld

Handrit

© Benóný Ægisson - Verkið má ekki afrita eða flytja opinberlega án leyfis höfundar













Um verkið

Síðasti dagur Sveins skotta er ljóðleikur eða söngdans þar sem jafngild eru leiklist, tónlist og dans. Það er svört kómedía sem gerist á 17. öld og fjallar um Svein Björnsson þjóf, nauðgara og galdramann sem var hengdur í Rauðuskörðum á Barðaströnd 1648. Sveinn þessi var enn í móðurkviði þegar faðir hans Axlar-Björn var tekinn af lífi fyrir morðverk sín. Uppsetningin var í samstarfi Lýðveldisleikhússins og Kómedíuleikhússins á Ísafirði.

Síðasti dagur Sveins skotta gerist á síðasta ævidegi Sveins þar sem hann bíður aftöku sinnar og rifjar upp líf sitt og ástæður þess að svona er komið fyrir honum. Konur hafa verið hans örlagavaldar, fyrst móðir hans sem gerði honum í móðurkviði að hefna föður síns, síðan fórnarlömb hans og að lokum konan sem leikur á hann og hefur hann undir.

Tónlist og dans leika stórt hlutverk í verkinu en tónlist og textar eru að vissu marki byggð á gamalli íslenskri þjóðlagahefð.

Uppsetning verksins var styrkt af menningarráði Vestfjarða og fyrirtækjum á Ísafirði sem eru vinveitt listum og menningu.

Síðasti dagur Sveins skotta var frumsýnt 18. mars 2010 í Edinborgarhúsinu á Ísafirði en einnig var verkið sýnt á Þingeyri og í Reykjavík.

Persónur og leikendur:
Svein skotti Björnsson
Elfar Logi Hannesson
Manga, Jón lærði, prestsmaddama, biskup o.fl
Halldóra Malín Pétursdóttir
Axlar-Björn, Jón ríðumaður, prestur o.fl
Ársæll Níelsson
Þórdís, vinnukona, bóndakona o.fl
Henna-Riikka Nurmi
Sýslumaður o.fl
Benóný Ægisson
Böðull o.fl
Steingrímur Guðmundsson
Handrit: Benóný Ægisson
Tónlist: Benóný Ægisson og Steingrímur Guðmundsson
Dansar: Henna-Riikka Nurmi
Leikmynd og búningar: Marsibil G. Kristjánsdóttir
Hljóðfæraleikur: Benóný Ægisson og Steingrímur Guðmundsson
Hljóðstjórn: Guðmundur Hjaltason
Ljós: Þorsteinn J. Tómasson
Myndir: Ágúst Atlason

 



Orgvél ehf - Skólavörðustíg 4C - 101 Reykjavík - gsm 897 8694- netfang: orgvel@orgvel.is