Forsíða

DRAUGANET

Harmrænn gleðileikur með söngvum
90 mín / 13 persónur
Leikritið gerist í hugskoti leikskálds

Handrit

© Benóný Ægisson - Verkið má ekki afrita eða flytja opinberlega án leyfis höfundar









Um verkið

Drauganet gerist í hugskoti höfundar sem er að reyna að skapa leikpersónur. Hann gerir ýmsar tilraunir á þeim og vekja þær sjaldnast mikla hrifningu leikpersónanna sem eru ofurseldar duttlungum höfundarins. Leikpersónur verksins þrá það heitast að komast í leikrit en eru svo óheppnar að hafa lent hjá duglausum höfundi. Hann á erfitt með að koma verkunum frá sér enda hefur hann ekki hugmynd um að persónurnar eiga sér sjálfstætt líf utan vitundar hans. Hann hefur því ekki grænan grun um hvaða óleik hann er að gera þeim.

Birtingarform leikpersónanna eru neytandinn sem vinnur sig upp í að verða álitsgjafi, fyrrverandi feitlaginn dægurlagasöngvari, venjuleg stelpa sem vinnur í sjoppu, formaður mannanafnanefndar, systir Siggu systur sem var ógeðslega fullkomin, stórkarl sem á svo mikið undir sér að hann lendir í erfiðleikum ef hann dansar kvikkstepp, súludansmær sem spyr grundvallarspurninga um lífið og tilveruna, fótboltabulla sem ávarpar föður sem er að meilbonda með syninum á vellinum, fyrirsæta í tilvistarkreppu, sjómaður sem er fluttur í elliblokk fyrir sunnan, eiginkona sem hefur tekið grínið í sína þjónustu til að lynda við eiginnmann sinn og húsvörður sem er öryrki og telur að hlutskipti sitt væri betra ef hann væri fluga sem líkaði vel að éta skít.

Drauganet var frumsýnt hjá Lýðveldisleikhúsinu í Tjarnarbíói 24. nóvember 2005.

Leikstjóri Darren Foreman
Lýsing Einar Þór Einarsson
Sviðshreyfingar Kolbrún Anna Björnsdóttir
Tónlist Benóný Ægisson
Persónur og leikendur
Álitsgjafi Ingibjörg Þórisdóttir
Dægurlagasöngvari Ólafur Guðmundsson
Venjuleg stelpa Aðalbjörg Þóra Árnadóttir
Nefndarformaður Þröstur Guðbjartsson
Gugga systir Kolbrún Anna Björnsdóttir
Stórkarl Valgeir Skagfjörð
Dansmær Brynja Valdís Gísladóttir
Knattspyrnuáhugamaður Páll Sigþór Pálsson
Fyrirsæta Ingibjörg Stefánsdóttir
Sjómaður Gunnar Eyjólfsson
Djókari Þórunn Clausen
Húsvörður Höskuldur Sæmundsson
Höfundur Benóný Ægisson

Orgvél ehf - Skólavörðustíg 4C - 101 Reykjavík - gsm 897 8694- netfang: orgvel@orgvel.is