LÝÐVELDISLEIKHÚSIÐ |
|||||||
![]() |
Síðasti dagur Sveins skottaDans og söngleikur![]() Síðasti dagur Sveins skotta er ljóðleikur eða söngdans þar sem jafngild eru leiklist, tónlist og dans. Það er svört kómedía sem gerist á 17. öld og fjallar um Svein Björnsson þjóf, nauðgara og galdramann sem var hengdur í Rauðuskörðum á Barðaströnd 1648. Sveinn þessi var enn í móðurkviði þegar faðir hans Axlar-Björn var tekinn af lífi fyrir morðverk sín. Uppsetningin er í samstarfi við Kómedíuleikhúsið á Ísafirði og var verkið frumsýnt 18. mars 2010 í Edinborgarhúsinu. Síðasti dagur Sveins skotta gerist á síðasta ævidegi Sveins þar sem hann bíður aftöku sinnar og rifjar upp líf sitt og ástæður þess að svona er komið fyrir honum. Konur hafa verið hans örlagavaldar, fyrst móðir hans sem gerði honum í móðurkviði að hefna föður síns, síðan fórnarlömb hans og að lokum konan sem leikur á hann og hefur hann undir. Tónlist og dans leika stórt hlutverk í verkinu en tónlist og textar eru að vissu marki byggð á gamalli íslenskri þjóðlagahefð. Uppsetning verksins er styrkt af menningarráði Vestfjarða og fyrirtækjum á Ísafirði sem eru vinveitt listum og menningu. Persónur og leikendur: |
![]() ![]() |
Myndir teknar á æfingum |
|
![]() |
![]() |
![]() |
![]() |
![]() |
![]() |
![]() |
![]() |
![]() |
![]() |
![]() |
![]() |
![]() |
![]() |
![]() |
![]() |
![]() |
![]() |
![]() |
![]() |
![]() |
![]() |
Myndir: Ágúst Atlason |